Íslenska English


Ég er stolt af því að vera til ráðgjafar þingsályktunartillögu til að tryggja alþjóðlega vernd fyrir rannsóknarblaðamennsku. Í huga mér inniber þessi ályktun sterk skilaboð og hvatningu til eflingar heilinda og gagnsæis hjá ríkisstjórnum víðsvegar um heim, þ.á.m. á Íslandi. Í starfi mínu við rannsóknir á spillingu hef ég orðið vitni af því hve mikilvægt það er að hafa öflugt regluverk til tryggja aðgengi almennings að upplýsingum. Ísland getur með nýstárlegri sýn á samhengi tilverunnar og vegna tilhneigingar til að fara sínar eigin leiðir orðið hinn fullkomni staður til að hrinda af stað verkefni af þessu tagi sem yrði til þess að efla gagnsæi og réttlæti á heimsvísu.
Eva Joly

VAGGA UPPLÝSINGA- OG TJÁNINGARFRELSIS

Ísland er á einstökum tímamótum. Á slíkum tímum er mikilvægt að finna sameiginlega framtíðarsýn og stefnu sem gæti þjappað þjóð og þingi saman.

Samþykkt var þingsályktun 16. júní 2010 um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi verndun tjáningar- og upplýsingafrelsis. Þingsályktunin hefur fengið frábærar undirtektir innan þings sem utan og vakið mikla athygli erlendis.

Markmiðið með þessari stefnu er að fela ríkisstjórninni að leita leiða til að styrkja tjáningarfrelsi, málfrelsi, upplýsingamiðlun og útgáfufrelsi hérlendis auk þess sem vernd heimildarmanna og uppljóstrara verði tryggð. Til þess að það geti orðið að veruleika þarf að undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar eða nýja löggjöf sem byggð væri á bestu mögulegu löggjöf annarra þjóða sem Íslendingar bera sig gjarnan saman við, til að skapa Íslandi sérstöðu á sviði tjáningar- og upplýsingafrelsis. Ályktunin gerir einnig ráð fyrir að komið verði á fót alþjóðaverðlaunum sem kennd verða við Ísland: Íslensku tjáningarfrelsisverðlaunin.

Þingsályktunin var samþykkt mótatkvæðalaust og nýtur stuðnings þingmanna allra flokka. Alþingi Íslendinga gerir sér vel grein fyrir mikilvægi þess að mörkuð verði heildræn stefna og löggjöf sem tryggir tjáningarfrelsi.

Mikill áhugi erlendra blaðamanna er á fyrirhugaðri lagasetningu. Sú stétt undir högg að sækja því frelsi til að flytja fréttir er skert í sívaxandi mæli. Ísland er að verða aþjóðlegt skjól blaðamanna.

Tillögur í greinargerð sem fylgir ályktuninni gera ráð fyrir breytingum á ýmsum lögum og reglugerðum. Með því verður skapað framsækið umhverfi fyrir starfsemi alþjóðlegra fjölmiðla og útgáfufélaga, sprotafyrirtækja, mannréttindasamtaka og gagnaversfyrirtækja. Stefnumörkunin gefur þjóðinni aukið vægi á erlendum vettvangi og getur orðið lyftistöng í atvinnu- og efnahagsmálum. Þessar breytingar treysta stoðir lýðræðis, eru hvati til nauðsynlegra umbóta og auka gagnsæi og aðhald.



Nýr vefur væntanlegur.